grunnáfangi verklegt
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ákveðnar æfingar til að koma í veg fyrir kreppur eða aflaganir og til þess að styrkja líkama.
Þekkingarviðmið
- Mikilvægi þess að stunda æfingar
- Að vellíðan getur fylgt æfingum
- Að hægt er að njóta æfinga
- Að æfingar geta komið í veg fyrir kreppur og aflaganir
- Að líkaminn styrkist við að stunda æfingar
Leikniviðmið
- Að framkvæma teygjuæfingar
- Að ganga sér til heilsubótar
- Æfingum í vatni
- Að auka stöðutíma í standbekk
- Að gera æfingar í stöðvaþjálfun
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í æfingum sem henta eða benda á hvaða æfingar henta honum
- Fjölga tækifærum til að nýta sér ýmis tilboð á sviði hreyfingar svo sem sund, gönguferðir og stöðvaþjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is