Stærðfræðihugtök
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Farið verður yfir nokkur undirstöðuhugtök stærðfræðinnar á einfaldan og fjölbreyttan hátt. Byrjað er að fjalla um efnið á sjónrænan- og heyrnrænan hátt. Tekin eru fyrir grunnform og grunnhugtök eins og fyrir framan, fyrir aftan, ofan, neðan og einnig tölustafir og einfaldar reiknisaðgerðir. Viðfangsefni og mismunandi form eru skoðuð og yfirfærð á námsumhverfið.
Þekkingarviðmið
- Að mismunandi form eru í umhverfinu
- Að formin eru ólík og eru allsstaðar
- Að til er fjöldi tölustafa sem tákna ákveðinn fjölda
Leikniviðmið
- Að greina á milli forma
- Að skoða mismunandi form
- Að nefna mismunandi form
- Að þekkja tölustafi
- Að kynnast mismunandi reikniaðferðum
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í umræðum um form í náttúrunni
- Reikna einföld dæmi úr daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is