HEFR1MM04 - Heimilisfræði með áherslu á mat á menningu frá öðrum löndum

Matur og menning frá öðrum löndum

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er lögð á mat og matarmenningu nokkurra þjóða. Nemendur fræðast um sögu og uppruna matarins og hvernig hefðir, menning, trúarbrögð, lega landa, landsvæði og fleira getur haft áhrif þar á. Nemendur kynnast fjölbreyttu hráefni og þjálfast í að matreiða rétti frá ýmsum löndum. Lögð er áhersla á að nemendur beri virðingu fyrir menningu og hefðum annarra þjóða. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.

Þekkingarviðmið

  • Hugtakinu matarmenningu og hversu misjöfn hún getur verið
  • Mismunandi sögu þeirra landa sem unnið er með hverju sinni
  • Uppruna matar í daglegu lífi í mismunandi löndum
  • Mikilvægi hefða í mismunandi löndum
  • Að vinnuferlið er alls staðar mikilvægt
  • Umburðarlyndi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
  • Sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu

Leikniviðmið

  • Lesa úr og nota mismunandi uppskriftir frá ólíkum löndum og menningu
  • Beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
  • Nota óhefðbundinn og ný hráefni á mismunandi átt
  • Skoða eigin neysluvenjur með tilliti til neysluvenja fólks í öðrum löndum
  • Vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur

Hæfnisviðmið

  • Kynnast nýjum matarhefðum og nýrri matarmenningu
  • Matbúa nýjar og framandi uppskriftir frá öðrum löndum
  • Smakka og borða nýjan og framandi mat frá öðrum löndum
  • Ræða málin og vera óhæddur að leita nýrra leiða
  • Vera meðvitaður um eigin neysluvenjur og geta borið þær saman við aðrar
  • Þekkja styrkleika sína og geta nýtt þá á jákvæðan hátt
  • Vinna með öðrum og sjálfstætt
  • Vita að þekkingarleit og sköpunarferli eru ekki síður mikilvæg en svör og niðurstöður
Nánari upplýsingar á námskrá.is