HEFR1HO04 - Heimilisfræði með áherslu á hollustu og velferð

Hollusta og velferð

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi, sérstaklega heilbrigði og velferð. Áhersla er lögð á hollustu, fjölbreytt fæðuval, samsetningu fæðutegunda, fæðuhringinn og velferð nemenda. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.

Þekkingarviðmið

  • Mikilvægi hollrar næringar og á fjölbreyttu fæðuvali
  • Fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
  • Áhrifum fæðunnar á líkamann
  • Sjálfstæðum vinnubrögðum
  • Samvinnu og verkaskiptingu

Leikniviðmið

  • Skipuleggja eigin fæðu yfir daginn með tilliti til hollrar næringar og fjölbreytts fæðuvals
  • Lesa utan á umbúðir og sjá hvaða hráefni er í vörunni
  • Sjá úr hvaða fæðuflokkum maturinn er
  • Breyta uppskriftum til að gera þær hollari og prófa þær
  • Búa til innkaupalista og fara í innkaupaferðir
  • Vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur

Hæfnisviðmið

  • Skipuleggja fjölbreyttan og næringarríkan matseðil
  • Elda hollan og fjölbreyttan mat
  • Vinna með öðrum
  • Skipuleggja matseðil og kaupa inn
Nánari upplýsingar á námskrá.is