Norðurlöndin
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með Norðurlöndin og fjallað um helstu borgir hvers lands. Einnig verða sameiginlegir þættir landanna skoðaðir ásamt því hvað gerir þau ólík.
Þekkingarviðmið
- Nöfnum Norðurlandanna
- Höfuðborgum Norðurlandanna
- Helstu kennileitum er tengjast Norðurlöndunum
- Vinsælum ferðamannastöðum á Norðurlöndum
Leikniviðmið
- Nefna og aðgreina Norðurlöndin
- Setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
- Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- Nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
- Að beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í umræðum um Norðurlöndin
- Greina á milli aðal- og aukaatriða
- Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
- Hlusta á sjónarmiða annarra af viðsýni
- Taka eftir ólíkum viðfangsefnum
Nánari upplýsingar á námskrá.is