Sköpun í skóla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á efla verklag nemenda í ýmsum verkefnum sem þeir hafa áhuga á að vinna. Áfanginn er hugsaður sem undirbúningsáfangi fyrir þátttöku úti á vinnumarkaðinum eða til að mæta áhuga og hæfni nemenda í skapandi vinnubrögðum.
Þekkingarviðmið
- Mikilvægi skipulags þegar verkefni eru unnin
- Að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
- Sköpun er ferli sem leiðir mann oft á framandi staði
- Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- Að hægt er að nálgast viðfangsefnið á skapandi hátt
Leikniviðmið
- Beita mismunandi verklagi
- Vinna eftir skipulagi
- Láta hæfileika sína njóta sín
- Átta sig á atvinnuskapandi tækifærum í nærumhverfinu
Hæfnisviðmið
- Vinna verkefni sjálfstætt eða eftir fyrirmælum
- Hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is