Þrif og hreinlæti
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriði í heimilisstörfum. Viðfangsefnið verður nálgast á fjölbreyttan hátt, farið verður í verklega æfingar ásamt því verða nemendur hvattir til að miðla reynslu sinni.
Þekkingarviðmið
- Mikilvægi þess að allir taki þátt í heimilisstörfum
- Helstu áhöldum, verkfærum og heimilistækjum við þrif
- Að nota hreinlætisvörur í hófi
Leikniviðmið
- Sópa og skúra gólf
- Ryksuga
- Taka úr og setja í uppþvottavél
- Taka úr og setja í þvottavél
- Taka úr og setja í þurrkara
- Strauja
- Brjóta saman þvott
- Þurrka af
- Pússa gler
- Ganga frá
- Vaska upp
- Þrífa baðherbergi
Hæfnisviðmið
- Greina hvenær viðeigandi er að sinna heimilisþrifum
- Gera áætlun um heimilisstörf
- Nýta sér viðeigandi heimilistæki
- Fara eftir almennum öryggisatriðum við heimilisþrif
- Þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur
Nánari upplýsingar á námskrá.is