Bakstur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriðum og verklagi tengdu bakstri. Notast verður við fjölbreyttar uppskriftir og áhersla verður á persónulegt hreinlæti þeirra sem starfa við bakstur.
Þekkingarviðmið
- Að bakstur er eldunaraðferð þar sem hráefnið er eldað í þurrum hita, oftast í ofni
- Helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi
- Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- Mikilvægi hreinlætis við baksturs
Leikniviðmið
- Fara eftir uppskriftum
- Taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
- Viðhafa hreinlæti við bakstur
- Nota viðeigandi öryggisbúnað við bakstur
Hæfnisviðmið
- Baka kökur eða útbúa aðrar veitingar
- Lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
- Ganga frá áhöldum og hráefni sem notað hefur verið
- Fara eftir almennum hreinlætiskröfum við bakstur
- Fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
Nánari upplýsingar á námskrá.is