FEÞJ1SS05 - Ferðaþjónusta

skipulagning, upplýsingagjöf, Þjónusta

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Markmið áfangans er að upplýsa nemendur um hvað ferðaþjónusta er og hvað felst í góðri ferðaþjónustu. Leitast er við að upplýsa nemendur um helstu ferðamannastaði á Íslandi og þeir þjálfaðir í að skipuleggja ferðir og ferðatengda þjónustu.

Þekkingarviðmið

  • því hvernig ferðaþjónusta á Íslandi er skipulögð og hverjir eru hagsmunaaðilar/-samtök
  • hvað felst í góðri ferðaþjónustu
  • hlutdeild starfsmanna í árangri ferðaþjónustu
  • • helstu ferðamannastöðum á Íslandi og einkennum þeirra
  • því sem er sérstakt og eftirsóknarvert á Suðurnesjum

Leikniviðmið

  • að skipuleggja ferðir fyrir mismunandi markhópa
  • veita haldgóðar upplýsingar sé þess óskað

Hæfnisviðmið

  • vera úrræðagóður við ýmiss konar aðstæður í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is