Sjúkraliðabraut 2016 (SJ16) - 200 ein.

Um brautina

Sjúkraliðanám er 200 eininga nám með námslok á 3. hæfniþrepi. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum. Sjúkraliðanám tekur að jafnaði 3 ár eða 6 annir. Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla og starfsþjálfun getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem sjúkraliði á Íslandi. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað.

ATH: Til þess að fara í vinnustaðanám sem hefst á fjórðu önn þurfa nemendur að vera orðnir 18 ára.

Nánari upplýsingar um námsleiðina ásamt ítarlegri áfangalýsingum má nálgast á: https://namskra.is/programmes/ece90eec-2a51-40d4-98e3-b82ba5310dd2

Skipting á annir

Hugmynd að skiptingu námsgreina á annir.

SKIPTING Á ANNIR - Sjúkraliðabraut 2016

Prentvæn útgáfa

PDF-skjal með Sjúkraliðabraut 2016 til að prenta út.

PRENTVÆN ÚTGÁFA - Sjúkraliðabraut 2016
ALMENNAR GREINAR - 64 einingar Grein 1. þrep   2. þrep 3. þrep 44 ein.
Íslenska ÍSLE       2BR05 2LR05        10
Stærðfræði STÆR       2AR05
        5
Enska ENSK       2KO05 2OS05        10
Danska DANS       2LU05         5
Vinnubrögð, iðni, tjáning og aðferðir VITA       2VT05         5
Upplýsingatækni UPPL       2TU05         5
Inngangur að félagsvísindum FÉLV 1IN05               5
Líffræði LÍFF       2ML05         5
Íþróttir ÍÞRÓ 1HB01 3 ein. val             4
SÉRGREINAR BRAUTAR - 109 einingar Grein 1. þrep   2. þrep 3. þrep 129 ein.
Heilbrigðisfræði HBFR 1HH05               5
Hjúkrun almenn HJÚK 1AG05     2HM05 2TV05 3FG05 3LO03 3ÖH05 28
Hjúkrun verkleg HJVG 1VG05               5
Líkamsbeiting LÍBE 1HB01               1
Líffæra- og lífeðlisfræði LÍOL       2IL05 2SS05       10
Lyfjafræði LYFJ       2LS05         5
Næringarfræði NÆRI 1NN05               5
Sálfræði SÁLF       2HS05   3SM05     10
Samskipti SASK       2SS05         5
Siðfræði SIÐF       2SÁ05         5
Sjúkdómafræði SJÚK       2GH05 2MS05       10
Skyndihjálp  SKYN       2EÁ01         1
Sýklafræði SÝKL       2SS05         5
Vinnustaðanám VINN       2LS08   3GH08 3ÖH08   24
STARFSÞJÁLFUN - 27 einingar Grein 1. þrep   2. þrep 3. þrep 27 ein.
Starfsþjálfun STAF           3ÞJ27     27