Nýtt Vizkustykki komið út

Fimmtudaginn 18 apríl kom út nýtt tölublað af skólablaðinu Vizkustykki. Blaðið er skemmtilegt og glæsilegt að vanda og var ekki annað að sjá en nemendur hafi verið ánægðir með blaðið. Í blaðinu er m.a. sagt frá því sem hefur gerst á önninni, rætt er við nokkra útskriftarnemendur og kennara og einnig er skemmtilegt viðtal við bræðurna Jón og Friðrik Dór.

Þess má geta að Vizkustykki kom fyrst úr árið 1977 og hefur komið út síðan, reyndar nokkuð óreglulega. Alls hafa komið út 44 tölublöð og er hægt að skoða þau á öll á vef nemendafélagsins.

Við óskum ritstjórn til hamingju með blaðið.