Fjölgreinabraut 2024 (FJ24) - 200 ein.

Fjölgreinabraut 2024 tekur gildi haustið 2024. Núverandi nemendur eru á Fjölgreinabraut 2020.

Inntökuskilyrði:
Inntökuskilyrði á fjölgreinabraut eru að hæfnieinkunn í íslensku, ensku og stærðfræði sé B við lok grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.