Meistaradagur FS verður 29. febrúar

Meistaradagur FS verður fimmtudaginn 29. febrúar kl. 11:30-13:30 en þá er meisturum og forsvarsmönnum fyrirtækja boðið að kynnast verknáminu í skólanum. Nám í hársnyrtiiðn, húsasmíði, rafvirkjun og verkstjórn verður kynnt en einnig verður fyrirlestur um námsferilbók. Boðið verður upp á súpu.

Við hvetjum meistara og forsvarsmenn fyrirtækja á Suðurnesjum til að kíkja í heimsókn og kynnast náminu og starfinu í verknámsgreinum.