Eftirfarandi inntökuskilyrði gilda fyrir nemendur fædda árið 2001 og síðar.
Þetta á aðeins við þá nemendur sem hafa tekið próf úr öllu námsefni 10. bekkjar grunnskóla í viðkomandi greinum.
Þeir nemendur sem ekki uppfylla skilyrði til að hefja nám á einstökum brautum velja línu á framhaldsskólabraut.
| Inntökuskilyrði á verk- og starfsnámsbrautir | Skólaeinkunn - lágmark | 
| Íslenska | C+ | 
| Stærðfræði | C+ (B á vélstjórnarbraut) | 
 
| Inntökuskilyrði á stúdentsbrautir (lágmarksskólaeinkunn) | Íslenska | Stærðfræði | Enska | 
| Félagsvísindabraut | B | C+ | B | 
| Fjölgreinabraut | B | B | B | 
| Íþrótta- og lýðheilsubraut - Stúdentsbraut | B | C+ | C+ | 
| Listnámsbraut myndlistarlína - Stúdentsbraut | B | C+ | C+ | 
| Listnámsbraut tónlistarlína - Stúdentsbraut | B | C+ | C+ | 
| Raunvísindabraut | B | B | C+ | 
| Tölvubrautir - Stúdentsbrautir | B | B | B | 
| Viðskipta- og hagfræðibraut | B | B | C+ | 
 
| Röðun í áfanga í dönsku, ensku og íslensku | Grunnskólaeinkunn | 
| Hraðferð 2. þrep: DANS2LB05, ENSK2KO05, ÍSLE2LR05 | A, B+ og B | 
| 2. þrep: DANS2LU05, ENSK2OS05, ÍSLE2BR05 | C+ | 
| Áfangi á 1. þrepi | C | 
| Áfangi á 1. þrepi | D / *merktar einkunnir | 
| Röðun í áfanga stærðfræði | Grunnskólaeinkunn | 
| Hraðferð 2. þrep: STÆR2AH05 | A og B+ | 
| 2. þrep: STÆR2AR05 | B | 
| Áfangi á 1. þrepi | C+ | 
| Áfangi á 1. þrepi | C, D / *merktar einkunnir | 
Að færast á milli brauta
Framhaldsskólabrautir eru jafnan skipulagðar sem tveggja ára námsbrautir. Nemendur sem innritast á framhaldsskólabrautir í upphafi náms í FS en stefna á að fara á stúdentsbrautir geta það að afloknu einu ári ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
Nemandi þarf að hafa lokið fyrstu áföngum í kjarna á 2. þrepi á stúdentsbrautum.
Um er að ræða:
- ÍSLE2BR05
- STÆR2AH05 / STÆR2AR05
- ENSK2OS05
Auk þessa er gerð krafa um að nemandi sé með að lágmarki 8 í skólasóknareinkunn á báðum önnum.
 
Nemendum sem lokið hafa einu ári á framhaldsskólabraut verknámslínu gefst kostur á að sækja um á verknámsbraut að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: Hafa lokið ÍSLE1ML05 og STÆR1AR05. Auk þessa er gerð krafa um að nemandi sé með að lágmarki 8 í skólasóknareinkunn á báðum önnum.
Síðast breytt: 13. júní 2023