Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota mismunandi lestrartækni við lestur ýmissa texta
- taka út aðalatriði úr flóknum texta og átta sig á meginefni hans
- koma frá sér texta á rituðu máli
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- ákvarða hvaða lestraraðferðum skuli beitt við hinar ýmsu textagerðir
- dýpka lesskilning sinn
- styrkja eigin mál- og ritfærni
- túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
- endursegja lengri sögu á sannfærandi hátt og lýsa flóknum aðstæðum með skýrum og einföldum hætti án málalenginga
![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() |