Yfirlitsáfangi
Í áfanganum eru ýmis atriði eldra námsefnis tekin til athugunar við lausnir á verkefnum. Auk þess er bætt við ýmsu nýju efni og má þar nefna tvinntölur og frekari hagnýtingu heildareiknings. Gert er ráð fyrir að nemendur skili reglulega heimaverkefnum sem krefjast staðgóðrar þekkingar á námsefni fyrri áfanga. Í verkefnunum skal flétta saman eldra og yngra námsefni. Lögð skal áhersla á skýra framsetningu lausna.