ÍÞRF3LÞ05 - Lífeðlis- og þjálfræði

Lífeðlisfræði, þjálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍOL2SS05 og ÍÞRF3LH05
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis, lungna, taugakerfis og áhrif markvissrar þjálfunar á líffærakerfin. Einnig er fjallað um gerða vöðvaþráða og áhrif mismunandi þjálfunar á starfsemi þeirra. Sérstök áhersla er lögð á að tengja lífeðlisfræði við íþróttaiðkun. Nemendur fá kennslu um þol, kraft, hraða og liðleika. Farið er yfir kannanir tengdar þrekþáttum. Komið er inn á tækni og tækniþjálfun íþróttamanna. Nemendur fræðast um skipulag þjálfunar íþróttamann og mikilvægi markmiðsetningar í tengslum við áætlanagerð. Áfanginn er bóklegur og verklegur

Þekkingarviðmið

  • starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis
  • starfsemi lungna
  • taugakerfi líkamans
  • vöðvakerfi líkamans

Leikniviðmið

  • tileinka sér helstu aðferðir sem beita má við uppbyggingu þols og krafts
  • nota æfingar og leiki sem nota má markvisst til að byggja upp þol og kraft
  • nota helstu þjálfunaraðferðir
  • framkvæma kannanir á þrekþáttum
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulag á þjálfun

Hæfnisviðmið

  • nota markvisst skipulag við íþróttaþjálfun
  • nota mismunandi þjálfunaraðferðir á mismunandi þjálfunarþætti
Nánari upplýsingar á námskrá.is