Mætingareglur

Nemendum ber að sækja allar kennslustundir

Veikindi

  • Ætlast er til þess að nemendur geri kennurum sínum grein fyrir fjarveru sinni (veikindum og öðrum fjarvistum) er þeir mæta næst í tíma.
  • Ef veikindi vara í tvo daga eða lengur og eru vottuð af lækni telst aðeins helmingur viðkomandi fjarvistarstiga með til útreiknings á skólasóknareinkunn. Skilyrði er að læknisvottorði sé skilað á skrifstofu skólans innan fimm skóladaga eftir að veikindum lýkur.
  • Ef samanlögð veikindi á einni önn fara fram yfir 12 skóladaga ber nemanda að gera námsráðgjafa grein fyrir aðstæðum sínum.
  • Nemandi með langvarandi veikindi þarf að hafa nána samvinnu við námsráðgjafa til að halda utan um sín mál.

Skólasóknareinkunn
Gefin er einkunn fyrir skólasókn á hverri önn. Einkunnin ákvarðast bæði af tímasókn og stundvísi og er fjarvist úr kennslustund metin til jafns við að koma þrisvar of seint.
Skólasóknareinkunn, sem endurspeglar viðveru í tímum, er gefin sem hér segir, eftir að tekið hefur verið tillit til veikinda og/eða leyfa:

  • Einkunn 10:  98-100% skólasókn
  • Einkunn 9:  95-97% skólasókn
  • Einkunn 8:  92-94% skólasókn
  • Einkunn 7:  89-91% skólasókn
  • Einkunn 6:  86-88% skólasókn
  • Einkunn 5:  83-85% skólasókn
  • Einkunn 4:  80-82% skólasókn
  • Einkunn 3:  75-79% skólasókn
  • Einkunn 2:  70-74% skólasókn
  • Einkunn 1:  0-69% skólasókn

Leyfi
Afreksíþróttafólk getur sótt um að fjarvera þess á námstíma reiknist ekki inn í skólasóknareinkunn. Fjarveran er vegna keppnisferða og/eða æfingabúða landsliðs í viðkomandi grein. Sama getur gilt um afreksfólk á öðrum sviðum. Sækja þarf skriflega um slíkt leyfi.
Önnur leyfi eru ekki veitt nema í undantekningartilfellum.

Mæting í áfanga

  • Nemanda er vísað úr áfanga ef fjarvistir fara yfir 12 talsins þar sem mæting í áfanga er 4 kennslustundir í viku. Hér er átt við raunmætingu.
  • Nemanda er vísað úr áfanga ef fjarvistir fara yfir 9 talsins þar sem mæting í áfanga er 3 kennslustundir í viku. Hér er átt við raunmætingu.
  • Nemanda er vísað úr áfanga ef fjarvistir fara yfir 6 talsins þar sem mæting í áfanga er 2 kennslustundir í viku. Hér er átt við raunmætingu.
  • Nemanda er vísað úr áfanga ef fjarvistir fara yfir 3 talsins þar sem mæting í áfanga er 1 kennslustundir í viku. Hér er átt við raunmætingu.
  • Kennari ræðir við nemanda ef óútskýrðar fjarvistir eru óeðlilega margar.

Sérreglur
Kennari hefur heimild til að setja sérstök ákvæði um mætingu og aðra ástundun. Slík ákvæði skulu tilgreind í kennsluáætlunum einstakra áfanga. Brot á slíkum ákvæðum jafngilda falli í viðkomandi áfanga.

Við upphaf annar
Ef nemandi mætir ekki í skólann fyrstu 5 kennsludagana á önn og lætur ekki vita af sér skriflega eða með tölvupósti á fss@fss.is. Þá verður litið svo á að hann ætli ekki að stunda nám við skólann þá önn og hann verður gerður óvirkur í Innu.

Nemandi getur látið skýringar fylgja fjarvistum
V Nemandi / forráðamaður getur skráð veikindi í Innu. (Dregst ekki frá þegar skólasóknareinkunn er reiknuð nema vottorði sé skilað, sjá reglur hér fyrir ofan)
Eftirfarandi skýringar geta fylgt fjarvistum. Nemandi þarf að hafa samband við skrifstofu sem skráir skýringu í Innu.
W Læknisvottorð
L Leyfi með samþykki skólans – undantekningartilfelli
K Keppni á vegum landsliðs – leyfi veitt ef staðfesting viðkomandi sérsambands er skilað inn
B Íþróttaþátttaka (ekki landsliðsferðir) – fjarvistir dragast ekki frá þegar skólasóknareinkunn er reiknuð
U Utanlandsferð – fjarvistir dragast ekki frá þegar skólasóknareinkunn er reiknuð