Menningarlæsi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÍSLE2LR05
Í áfanganum verður lögð áhersla á að nemendur kynnist bókmenntum frá miðöldum og fái þannig innsýn í menningararf þjóðarinnar. Nokkrir textar frá þessum tíma verða lesnir og unnið með þá. Nemendur læra að þekkja forna bragarhætti og að þekkja einkenni helstu bókmenntagreina frá þessum tíma.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi miðaldabókmennta fyrir íslenska menningu
- þeim menningararfi sem nútíma bókmenntir byggjast á
- helstu bókmenntagreinum til 1550
Leikniviðmið
- greina einkenni helstu bókmenntagreina frá miðöldum
- lesa miðaldatexta sér til gagns og ánægju
- greina og túlka miðaldatexta af skynsamlegu viti
Hæfnisviðmið
- gera öðrum grein fyrir upplifun sinni og túlkun á miðaldabókmenntum
- gera sér grein fyrir samhengi íslenskrar bókmenningar frá öndverðu og til siðaskipta
Nánari upplýsingar á námskrá.is